Ísland í tölum 2009-2010


Ísland í tölum er lítill bæklingur (10,5 x 15 sm) sem Hagstofan gefur út árlega. Hann hefur að geyma ýmsar lykiltölur um land og þjóð. Ritið byggist á Landshögum, árbók Hagstofunnar, og þaðan eru fengnar tölulegar upplýsingar um flest svið þjóðlífsins. M.a. má finna upplýsingar um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun, tekjur, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu, kosningar og fleira. Bæklingurinn hentar vel í ferðaþjónustu og er hann einnig gefinn út á ensku: Iceland in figures.

Til baka