ÍSTARF95 — Íslensk starfaflokkun — 2. útgáfa


  • Flokkunarkerfi
  • 17. febrúar 2009
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Íslensk starfaflokkun var fyrst gefin út árið 1994 en kemur nú út öðru sinni aukin og endurbætt. Eitt meginmarkmiðið með samningu íslenskrar starfaflokkunar er að hér á landi sé unnt að beita flokkunarkerfi sem sé samhæft því sem mest er notað á alþjóðavettvangi. Íslenska flokkunin er byggð á alþjóðlegu starfaflokkuninni ISCO_88 (International Standard Classification of Occupations) sem gefin er út af Alþjóðavinnumálastofnuninni. Við endurskoðunina hefur Hagstofa Íslands m.a. stuðst við ábendingar frá notendum 1. útgáfu af ÍSTARF95. Nú er starfslýsingum gert hærra undir höfði og skyld störf tilgreind við hvern starfaflokk. Þá hefur starfsheitum verið fjölgað í tæp 3.300 og atriðisorðaskrá aukin og endurbætt.

Til baka