Greiðsla fyrir sérvinnslu
Gjaldskyldir notendur
- Ráðuneyti og Alþingi
- Önnur stjórnsýsla/ríkisstofnanir
- Sveitarfélög
- Íslensk samtök
- Fyrirtæki
- Fræðimenn og rannsóknarstofur
- Erlendir aðilar
- Nemar
- Almenningur og einstaklingar
Notendur sem eru undanskildir greiðslu fyrir sérvinnslu sem tekur innan við 3 klukkustundir
Aðrar hagskýrslugerðarstofnanir sem eru opinberir viðurkenndir hagskýrsluframleiðendur og vinna með Hagstofu íslands að opinberri hagskýrslugerð eru eftirfarandi:
- Embætti landlæknis (The Directorate of Health)
- Ríkislögreglustjóri (The National Commissioner of the Icelandic Police)
- Samgöngustofa (The Icelandic Transport Authority)
- Seðlabankinn (Central Bank of Iceland)
Helstu gagnaveitendur Hagstofu Íslands til hagskýrslugerðar:
- Þjóðskrá Íslands
- Skatturinn
Notendur sem eru undanskildir greiðslu
Vinna fyrir þær alþjóðastofnanir sem Ísland er aðili að er gjaldfrjáls. Oft eru þetta reglulegar/árlegar fyrirspurnir og er vinna við þær gjaldfrjáls. Komi nýjar, mjög umfangsmiklar fyrirspurnir frá þessum aðilum ber að leita álits. Lista yfir þær má finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Af þeim stofnunum eru eftirtaldar stofnanir notendur Hagstofunnar:
- EFTA - Fríverslunarsamtök Evrópu (The European Free Trade Association)
- Eurostat - Hagstofa Evrópusambandsins
- ESS - Aðrar Hagstofur innan Evrópska Hagskýrslusambandsins (The European Statistical System)
- FAO - Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (The Food and Agriculture Organization of the United Nations)
- ICES - Alþjóðahafrannsóknaráðið (International Council for the Exploration of the Sea)
- ILO - Alþjóðavinnumálastofnunin (International Labour Organization)
- IMF - Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (The International Monetary Fund)
- OECD - Efnahags- og framfarastofnunin (The Organisation for Economic Co-operation and Development)
- UN - Sameinuðu þjóðirnar (The United Nations)
- UNESCO - Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna ( The United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization)
- UNECE - Efnahagsnefnd Sameinuðu þjóðanna (The United Nations Economic Commission for Europe)
- WHO - Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (World health organization)
- WTO - Alþjóðaviðskiptastofnunin (The World Trade Organization)
- NOMESCO - Norræna heilbrigðistölfræðinefndin (Nordic Medico-Statistical Committee)
- Nordstat - Norræna Ráðherranefndin (The Nordic Council of Ministers)
- Nososko - Norræna hagskýrslunefndin á sviði félagsverndar (Nordic Socialstatistik Komité)