Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 6,6 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2016, en á sama tíma 2015 var hún neikvæð um 11,6 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 1,1% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 2,7% af tekjum hins opinbera. Fyrstu sex mánuði ársins var afgangurinn 371,5 milljarðar eða 43,1% af tekjum tímabilsins.
Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2016)