Undanfarin ár hefur launagreiðendum fjölgað í flestum atvinnugreinum.
Í janúar 2022 voru að jafnaði 18.906 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 828 (5%) frá sama mánuði ári fyrr. Árið 2021 voru að meðaltali 19.440 launagreiðendur, sem er fjölgun um 1.004 (5,4%) frá 2020.
Árið 2020 var mikið um lokanir og takmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins og því er athyglisvert að bera saman tölur 2021 og 2019, þ.e. fyrir faraldurinn. Á árinu 2021 voru að meðaltali 680 (4%) fleiri launagreiðendur en 2019.
Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem hér er byggt á staðgreiðslugögnum getur verið um vanmat að ræða þegar launagreiðendur skila ekki upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar eru jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna
Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun. Heildarfjöldi launagreiðenda í nóvember 2021 telst nú vera 20.203 sem er fjölgun um 1.582 (8,5%) frá nóvember 2020.
Þegar tölur voru birtar 10. janúar sl. töldust vera 19.715 launagreiðendur í nóvember 2021. Fjöldi launagreiðenda var þá talinn hafa aukist um 1.094 (5,9%) frá nóvemer 2020 til nóvember 2021.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hafa verður í huga að í tölum um launþega eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.
Hagstofa Íslands birtir tilraunatölfræði um staðgreiðsluskyldar greiðslur til einstaklinga en þar eru m.a. upplýsingar um launsummu og fjölda einstaklinga sem fá staðgreiðsluskyldar greiðslur, skipt eftir atvinnugreinum og sveitarfélögum.
Hagstofa Íslands birtir heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum og eru þar taldir með þeir sem greiða sjálfum sér laun. Starfandi eru meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili. Hagstofan gefur einnig út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2020 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Hagstofan framkvæmir enn fremur samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega.
Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og eru aðeins taldir með þeir sem skráðir eru í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.