FRÉTT FYRIRTÆKI 11. APRÍL 2017

Á 12 mánaða tímabili, frá mars 2016 til febrúar 2017, voru að jafnaði 16.947 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 210 (1,3%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 181.300 einstaklingum laun sem er aukning um 8.300 (4,8%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Í febrúar voru 2.423 launagreiðendur og um 10.700 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.500 eða um 17% samanborið við febrúar 2016. Sömuleiðis voru í febrúar 1.558 launagreiðendur og um 23.400 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.900 eða um 14% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 6.000 eða um 4% og er því tæplega helmingur nýrra starfa í einkennandi greinum ferðaþjónustu.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1. Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar febrúar
  feb. 2017 2016 2017 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar 16.337 170.000 176.000 6.000 4
Sjávarútvegur 459 9.400 7.800 -1.600 -17
Framleiðsla án fiskvinnslu 1.019 16.200 16.500 300 2
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 2.423 9.200 10.700 1.500 17
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 2.283 25.100 25.900 800 3
Fjármála- og vátryggingastarfsemi 376 6.200 6.200 0 0
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla 551 39.200 39.500 300 1
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta 1.073 15.100 15.600 400 3
Einkennandi greinar ferðaþjónustu 1.558 20.500 23.400 2.900 14
Tækni- og hugverkaiðnaður 864 12.500 12.500 0 0
Skapandi greinar 1.489 9.100 9.100 0 0
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum        

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í umfjöllum um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í desember 2016 telst nú vera 17.758 og heildarfjöldi launþega 183.100. Fjöldi launþega jókst um 9.300 (5,4%) frá desember 2015 til desember 2016.

Í febrúar 2017 töldust vera 16.914 launagreiðendur og 182.100 launþegar í desember 2016. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 8.300 (4,8%) frá desember 2015 til desember 2016.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggir á skattframtölum og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir vinnumarkaðsrannsókn (VMR) samfellt allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttaka, fjöldi starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutími eftir atvinnugreinum) ársfjórðungslega. Í VMR eru einnig upplýsingar um sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og hafa fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.