FRÉTT FYRIRTÆKI 09. FEBRÚAR 2017

Á árinu 2016 voru að jafnaði 16.721 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 705 (4,4%) frá árinu 2015. Á síðasta ári greiddu launagreiðendur að meðaltali um 180.100 einstaklingum laun sem er aukning um 8.400 (4,9%) samanborið við árið á undan.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Á árinu 2016 voru að meðaltali 1.577 launagreiðendur og um 24.200 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.800 eða um 18,7% frá árinu á undan.

Sömuleiðis voru að meðaltali 2.404 launagreiðendur og um 10.400 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.400 eða um 15,6% á einu ári.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1: Fjöldi laungagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar
  ársmeðaltal 2016 Ársmeðaltal 2015 Ársmeðaltal 2016 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar 16.721 171.700 180.100 8.400 4,9
Sjávarútvegur 586 9.700 9.400 -300 -3,2
Framleiðsla án fiskvinnslu 1.028 16.500 17.000 500 3,1
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 2.404 9.000 10.400 1.400 15,6
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 2.313 24.900 26.200 1.200 4,9
Fjármála- og vátryggingastarfsemi 384 6.400 6.400 0 -0,5
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla 562 41.400 41.300 -200 -0,4
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta 1.075 15.600 15.900 300 2,0
Einkennandi greinar ferðaþjónustu 1.577 20.400 24.200 3.800 18,4
Tækni- og hugverkaiðnaður 874 12.300 12.700 400 2,9
Skapandi greinar 1.520 8.900 9.200 300 3,3
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum        

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímalega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í nóvember 2016 telst nú vera 16.938 og heildarfjöldi launþega 184.100. Fjöldi launþega jókst um 11.100 (6,5%) frá nóvember 2015 til nóvember 2016.

Í fréttatilkynningu í janúar 2017 töldust vera 16.498 launagreiðendur og 183.300 launþegar í nóvember 2016. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 10.300 (5,9%) frá nóvember 2015 til nóvember 2016.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggir á skattframtölum og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir vinnumarkaðsrannsókn (VMR) samfellt allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttaka, fjöldi starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutími eftir atvinnugreinum) ársfjórðungslega. Í VMR eru einnig upplýsingar um sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og hafa fasta búsetu á Ísland. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.