FRÉTT FYRIRTÆKI 06. SEPTEMBER 2017

Á 12 mánaða tímabili, frá ágúst 2016 til júlí 2017, voru að jafnaði 17.217 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 695 (4,2%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 185.000 einstaklingum laun sem er aukning um 8.700 (4,9%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þó hefur dregið úr hraða vaxtar. Launþegum hefur fækkað í sjávarútvegi.

Í júlí var 2.551 launagreiðandi og um 13.000 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 (14%) samanborið við júlí 2016. Í júlí voru 1.870 launagreiðendur og um 29.900 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.400 (9%) á einu ári. Launþegum í heild hefur á sama tíma fjölgað um 7.200 (4%).

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar júlí
  júlí 2017 2016 2017 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.185 190.200 197.800 7.700 4
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 642 9.000 8.700 -300 -3
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.026 17.700 17.600 -100 0
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.551 11.400 13.000 1.600 14
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 45-47) 2.281 26.200 27.600 1.400 5
Fjármála- og vátryggingastarfsemi (ÍSAT nr. 64-66) 382 6.600 6.700 100 1
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 544 45.600 45.000 -600 -1
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.060 16.300 16.700 400 3
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.870 27.500 29.900 2.400 9
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 866 13.300 13.400 100 1
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.502 9.100 9.000 -100 -1
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum          

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í júní 2017 telst nú vera 17.520 og heildarfjöldi launþega 198.200. Fjöldi launþega jókst um 8.400 (4,4 %) frá júní 2016 til júní 2017.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í ágúst 2017  töldust vera 17.131 launagreiðandi og 196.500 launþegar í júní 2017. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 6.700 (3,5%) frá júní 2016 til júní 2017.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggir á skattframtölum og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir vinnumarkaðsrannsókn (VMR) samfellt allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttaka, fjöldi starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutími eftir atvinnugreinum) ársfjórðungslega. Í VMR eru einnig upplýsingar um sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og hafa fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni:
  Einkennandi greinar ferðaþjónustu 
  Allar atvinnugreinar 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.