FRÉTT FYRIRTÆKI 03. ÁGÚST 2017

Á 12 mánaða tímabili, frá júlí 2016 til júní 2017, voru að jafnaði 17.166 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 722 (4,4%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 184.200 einstaklingum laun sem er aukning um 8.600 (4,9%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þó hefur dregið úr hraða vaxtar. Launþegum hefur fækkað í sjávarútvegi.

Í júní voru 2.557 launagreiðendur og um 12.900 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.500 (13%) samanborið við júní 2016. Í júní voru 1.809 launagreiðendur og um 29.300 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.500 (9%) á einu ári. Launþegum í heild hefur á sama tíma fjölgað um 6.700 (4%).

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar júní
  júní 2017 2016 2017 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.131 189.800 196.500 6.700 4
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 648 9.700 9.100 -600 -6
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.032 17.800 17.900 100 0
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.557 11.400 12.900 1.500 13
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 45-47) 2.263 26.600 27.900 1.300 5
Fjármála- og vátryggingastarfsemi (ÍSAT nr. 64-66) 386 6.700 6.700 0 1
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 549 45.800 45.300 -500 -1
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.072 16.400 16.800 400 3
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.809 26.800 29.300 2.500 9
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 879 13.300 13.500 200 2
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.502 9.300 9.300 -100 -1
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum.          

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggist á skattframtölum og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofan framkvæmir vinnumarkaðsrannsókn (VMR) samfellt allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttaka, fjöldi starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutími eftir atvinnugreinum) ársfjórðungslega. Í VMR eru einnig upplýsingar um sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og hafa fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni:

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.