Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan ferðaskrifstofur og farþegaflutninga á vegum, í september og október 2016 nam 669 milljörðum króna, sem er 4% aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 5% samanborið við 12 mánuði þar áður. Starfsemi tengd farþegaflutningum og ferðaskrifstofum var ekki virðisaukaskattskyld fyrr en í ársbyrjun 2016 og verður að taka tillit til þess þegar velta ársins 2016 er borin saman við fyrri ár.
Velta í allri virðisaukaskattskyldri starfsemi nam 688 milljörðum króna í september og október 2016.
Virðisaukaskattsvelta | ||||||
sept.-okt. 2015 | sept.-okt. 2016 | % | nóv. 2014-okt. 2015 | nóv. 2015-okt. 2016 | % | |
Alls | 644.299 | 687.724 | 7% | 3.777.036 | 4.074.344 | 8% |
Alls án ferðaskrifstofa og farþegaflutninga á vegum¹ | 642.996 | 668.795 | 4% | 3.769.239 | 3.973.494 | 5% |
01/02 Landbúnaður og skógrækt² | 2.536 | 2.664 | 46.134 | 50.846 | 10% | |
03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 64.709 | 64.012 | -1% | 388.936 | 364.546 | -6% |
C Framleiðsla, án 10.2, fiskvinnslu | 114.867 | 109.118 | -5% | 712.014 | 666.664 | -6% |
D/E Veitustarfsemi | 28.286 | 26.747 | -5% | 171.343 | 161.363 | -6% |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 39.519 | 48.264 | 22% | 192.770 | 258.635 | 34% |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 205.440 | 212.761 | 4% | 1.205.667 | 1.266.606 | 5% |
H Flutningar og geymsla¹ | 66.999 | 72.460 | 8% | 366.268 | 428.542 | 17% |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 22.835 | 29.733 | 30% | 132.078 | 163.025 | 23% |
J Upplýsingar og fjarskipti | 30.931 | 32.653 | 6% | 175.162 | 193.128 | 10% |
L Fasteignaviðskipti og fasteignaleiga | 11.584 | 12.660 | 9% | 64.317 | 75.522 | 17% |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 27.039 | 29.088 | 8% | 141.197 | 156.137 | 11% |
N Önnur leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta¹ | 16.262 | 33.403 | 105% | 91.954 | 182.856 | 99% |
Aðrir bálkar | 13.294 | 14.159 | 7% | 89.195 | 106.473 | 19% |
¹Í ársbyrjun 2016 tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. urðu hluti farþegaflutninga (bálkur H) og þjónusta ferðaskrifstofa (bálkur N) virðisaukaskattsskyld. | ||||||
²Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. |
Við birtingu fréttar í nóvember var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í júlí og ágúst 2016 talin vera 749,3 milljarðar sem var 12,9% hækkun frá sömu mánuðum árið 2015. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi á þessu tímabili er talin vera 751,2 milljarðar sem er 13,2% hækkun frá sömu mánuðum árið 2015. Sjá nánar um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum.
Í ársbyrjun 2016 tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt, 50/1988, sem gerðu nokkrar atvinnugreinar virðisaukaskattskyldar sem áður voru undanþegnar. Þar ber helst að nefna farþegaflutninga aðra en áætlunarflutninga (undir bálki H) og þjónustu ferðaskrifstofa (undir bálki N). Þetta er að hluta til skýringin á mikilli aukningu á virðisaukaskattskyldri veltu í þessum greinum, en einnig hafa umsvif þessara atvinnugreina aukist mikið undanfarin ár.
Í ársbyrjun 2016 tóku einnig gildi breytingar á vörugjöldum, m.a. hækkaði vörugjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virðisaukaskatts í neðra. Þar sem hér er birt velta án virðisaukaskatts þá hafði flutningur milli þrepa engin áhrif á tölur. Hins vegar leggst virðisaukaskattur ofan á vörugjald og því veldur hækkun vörugjalds hækkun á virðisaukaskattskyldri veltu. Hækkanir á vörugjaldi á áfengi valda því veltuaukningu í liðunum „Heild- og smásöluverslun“ og „Rekstur gististaða og veitingarekstur“.
Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggja á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.