FRÉTT FYRIRTÆKI 17. OKTÓBER 2022

Samkvæmt virðisaukaskattskýrslum hefur velta aukist í flestum atvinnugreinum undanfarið ár, þ.e. frá júlí-ágúst 2021 til sömu mánaða 2022. Í sumum atvinnugreinum var aukningin þó minni en hækkun verðlags en vísitala neysluverðs hækkaði um 10% á þessu tímabili.

Margar þjónustugreinar, s.s. ferðaþjónusta, eru að rétta úr kútnum eftir kórónuveirufaraldurinn og er velta þeirra mun hærri 2022 en 2021. Í framleiðslugreinum og verslun voru áhrif faraldursins ekki eins mikil.

Velta jókst um 84% í olíuverslun. Samkvæmt verslunarskýrslum var svipað magn eldsneytis flutt inn í júlí-ágúst 2021 og sömu mánuði 2022 en einingarverð hækkaði mikið á milli ára. Sömuleiðis má skýra 46% aukningu veltu í framleiðslu málma með verðhækkunum þar sem svipað magn var flutt út en einingarverð hækkaði.

Aukningu veltu í byggingarstarfsemi um 34% má að einhverju leyti skýra með auknum umsvifum. Þannig fengu t.d. 10% fleiri einstaklingar laun í þessari atvinnugrein í júlí-ágúst 2022 en á sama tímabili ári fyrr.

Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Kórónuveirufaraldurinn hafði mikil áhrif á ferðaþjónustu árin 2020-2021 en greinin virðist vera að ná sér. Samkvæmt virðisaukaskattskýrslum nam velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi 195,6 milljörðum í júlí-ágúst 2022 og er hefur aldrei verið hærri í krónum talið. Velta var 14% hærri í júlí-ágúst 2022 en á sama tímabili 2018 en hafa ber í huga að þessar tölur eru á ekki á föstu verðlagi og hefur vísitala neysluverðs hækkað um 22% á þessu tímabili. Mikill munur er á einstökum greinum ferðaþjónustu. Velta hækkaði um 40% í nokkrum greinum en velta í farþegaflutningum með flugi og þjónustustarfsemi tengd þeim lækkaði.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 29. ágúst sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, landbúnaði og skógrækt, talin vera 1.124,3 milljarðar króna í júní-júlí 2022 sem var 35,29% hækkun frá sama tímabili árið 2021. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin hafa verið 1.125,1 milljarðar sem er 35,31% hækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina. Einnig er gott að skoða tölur um veltu í víðara samhengi og tengja þær við tölur um vöruviðskipti, launagreiðslur o.fl.

Talnaefni
Velta í öllum atvinnugreinum
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.