FRÉTT FYRIRTÆKI 18. MAÍ 2018

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.273 milljarðar á tímabilinu mars 2017 til febrúar 2018 sem er 6,0% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan.

Mesta hækkun milli ára var í greinum tengdum fiskveiðum og -vinnslu. Vegna verkfalls sjómanna var velta í þessum greinum óvenju lág fyrstu mánuði árs 2017. Velta í framleiðslu málma var 15,2% meiri í janúar og febrúar 2018 en sömu mánuði 2017. Á sama tíma minnkaði velta í annarri framleiðslu.

Velta í byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugreftri og vinnsla hráefna úr jörðu jókst um 14% milli ára. Einnig var mikil aukning í veltu hjá bílaleigum, en þess ber að geta að fyrstu tvo mánuði ársins 2018 voru 16% fleiri bílaleigubílar í umferð en sömu mánuði ári áður.

Tafla 1: Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna)
  Jan.-feb. 2017 Jan.-feb. 2018 Breyting, % Mars 2016-feb. 2017 Mars 2017-feb. 2018 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu¹ 548 617 12,8 4.033 4.273 6,0
A-01/A-02 Landbúnaður og skógrækt²         •         •         • 51 51 -0,6
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 31 50 59,0 326 342 4,8
C-24 Framleiðsla málma 35 41 15,2 201 228 13,3
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 60 59 -0,8 400 413 3,1
D/E Veitustarfsemi 28 30 9,6 163 172 6,0
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 38 43 14,2 289 328 13,7
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 22 24 7,4 162 176 8,3
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 23 31 31,7 215 202 -6,0
G-4671 Olíuverslun 15 16 1,0 113 124 9,8
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 49 52 5,3 341 344 0,9
G-47 Smásala 62 66 6,9 433 461 6,5
H Flutningar og geymsla 56 65 16,2 429 464 8,0
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 22 24 6,7 178 191 7,7
J Upplýsingar og fjarskipti 30 31 4,4 194 199 2,4
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 5 6 21,0 46 52 12,6
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 13 13 2,3 100 108 7,8
Erlendir aðilar sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi 1 1 55,9 4 7 83,9
Aðrar atvinnugreinar 55 63 15,5 389 413 6,3
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
²Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.

Velta eftir virðisaukaskattsþrepum
Hærra þrep virðisaukaskatts, eða almennt þrep, er í dag 24%. Í þessu þrepi eru allar tegundir vöru og þjónustu sem ekki eru flokkaðar í öðrum þrepum samkvæmt lögum um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). 

Lægra þrep virðisaukaskatts er í dag 11% skv. 14. grein laga um virðisaukaskatt. Í þessu þrepi eru m.a. bækur, tímarit, hitaveita, rafmagn til húshitunar, matvara, þjónusta veitingahúsa, gistiþjónusta, farþegaflutningar innanlands (aðrir en áætlunarflutningar) og þjónusta ferðaskrifstofa. Áfengi er í lægra þrepi síðan 1. janúar 2016 en var áður í hærra þrepi.

Velta undanskilin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt: Ekki þarf að greiða virðisaukaskatt af þessari veltu, en þó er skylt að skila virðisaukaskattskýrslum og hægt er að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hefur verið greiddur til að afla tekna. Útflutningur á vöru og þjónustu er undanskilinn virðisaukaskatti. Sem dæmi um útflutta þjónustu má nefna millilandaflug og -siglingar; útflutning hugbúnaðarþjónustu; og utanlandsferðir sem íslenskar ferðaskrifstofur selja. Samningsbundnar greiðslur úr ríkissjóði vegna mjólkurframleiðslu og sauðfjárframleiðslu eru einnig undanskildar virðisaukaskatti.

Þjónusta undanskilin virðisaukaskatti: Ýmiss konar þjónusta er að öllu leyti undanskilin virðisaukaskatti skv. 2. grein laga um virðisaukaskatt. Veltu í þess konar þjónustu á ekki að telja með í virðisaukaskattskýrslum og ekki er hægt að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem rekstraraðilar hafa greitt í tengslum við þessa þjónustu. Eðli máls samkvæmt er þjónusta af þessu tagi ekki talin með í hagtölum um veltu skv.
virðisaukaskattskýrslum. Sem dæmi um þjónustu sem er undanþegin virðisaukaskatti má nefna almenningssamgöngur, aðra áætlunarflutninga innanlands, læknisþjónustu, íþróttastarfsemi, happdrætti og fasteignasölu.
Frekari upplýsingar um virðisaukaskatt má finna á heimasíðu Ríkisskattstjóra

Tafla 2: Velta skv. virðisaukaskattskýrslum á tímabilnu mars 2017-febrúar 2018, eftir virðisaukaskattþrepum (milljarðar króna)   
  Velta undanþegin vsk Lægra vsk-þrep Hærra vsk-þrep Alls
Alls, án lyfjaframleiðslu¹ 1.279 (30%) 918 (21%) 2.076 (49%) 4.273
A-01/A-02 Landbúnaður og skógrækt 10 (19%) 11 (21%) 30 (60%) 51
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 232 (68%) 95 (28%) 15 (5%) 342
C-24 Framleiðsla málma 226 (99%) 0 (0%) 1 (1%) 228
C Framleiðsla, án fiskvinnslu (C-102), lyfjaframleiðslu (C-21) og framleiðslu málma (C-24) 100 (24%) 136 (33%) 176 (43%) 413
D/E Veitustarfsemi 7 (4%) 26 (15%) 139 (81%) 172
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 5 (1%) 1 (0%) 323 (98%) 328
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 8 (5%) 0 (0%) 167 (95%) 176
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 152 (76%) 40 (20%) 9 (5%) 202
G-4671 Olíuverslun 28 (22%) 6 (5%) 90 (73%) 124
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 28 (8%) 89 (26%) 227 (66%) 344
G-47 Smásala 20 (4%) 192 (42%) 249 (54%) 461
H Flutningar og geymsla 360 (78%) 25 (5%) 79 (17%) 464
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 5 (3%) 179 (93%) 8 (4%) 191
J Upplýsingar og fjarskipti 40 (20%) 16 (8%) 143 (72%) 199
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 1 (2%) 0 (1%) 51 (98%) 52
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 15 (14%) 86 (80%) 7 (6%) 108
Erlendir aðilar sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi 0 (0%) 1 (13%) 6 (86%) 7
Aðrar atvinnugreinar 43 (10%) 15 (4%) 355 (86%) 413
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. 

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar í mars var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 760,4 milljarðar í nóvember og desember 2017 sem var 8,7% hækkun frá sömu mánuðum árið 2016. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, á þessu tímabili er talin vera 763,7 milljarðar sem er 9,2% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum og tölulegar upplýsingar um breytingar á þegar birtum hagtölum eru í endurskoðun hagtalna.

Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
   Einkennandi greinar ferðaþjónustu
   Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.