Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.443 milljarðar á tímabilinu september 2017 til ágúst 2018, sem er 8,9% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan.
Á tímabilinu júlí-ágúst 2018 var veltan 811 milljarðar eða 8,8% hærri en sömu mánuði árið áður. Á sama tímabili jókst veltan í framleiðslu málma um 20,4%, velta í olíuverslun um 15,1% og velta í fasteignaviðskiptum um 14%,1. Velta í sölu og viðhaldi vélknúinna ökutækja lækkaði um 0,9%.
Útflutningshneigð
Í tölum um virðisaukaskatt má sjá útflutningshneigð einstakra atvinnugreina því útflutningur er undanskilin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
Undanfarin ár hefur undanþegin velta, þ.e. útflutningsverðmæti, hugbúnaðargeirans aukist jafn og þétt. Framan af jókst einnig fjöldi launþega í greininni, en síðan um mitt ár 2017 hefur þeim fækkað og eru nú um 8% færri launþegar en fyrir ári síðan.
Atvinnugreinin „framleiðsla á vélum fyrir matvæla- og drykkjarvöruvinnslu„ hefur þróast á annan hátt en hugbúnaðargerð. Útflutningsverðmæti hefur verið sveiflukenndara, svo og fjöldi launþega. Seinustu tvö ár hefur launþegum í greininni fjölgað um 10% á ársgrundvelli.
Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna) | ||||||
Júlí-ágúst 2017 | Júlí-ágúst 2018 | Breyting, % | Sept. 2016-ágúst 2017 | Sept. 2017-ágúst 2018 | Breyting, % | |
Alls án lyfjaframleiðslu¹ | 745 | 811 | 8,8 | 4.079 | 4.443 | 8,9 |
A-01/A-02 Landbúnaður og skógrækt² | .. | .. | .. | 51 | 51 | 1,3 |
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 51 | 57 | 10,8 | 309 | 354 | 14,5 |
C-24 Framleiðsla málma | 36 | 44 | 20,4 | 210 | 243 | 16,1 |
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma | 68 | 73 | 7,4 | 400 | 423 | 5,8 |
D/E Veitustarfsemi | 27 | 30 | 11,5 | 166 | 181 | 8,6 |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr j | 58 | 63 | 8,4 | 307 | 343 | 11,7 |
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja | 29 | 29 | -0,9 | 167 | 169 | 1,1 |
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk | 31 | 33 | 5,5 | 196 | 215 | 10,0 |
G-4671 Olíuverslun | 25 | 28 | 15,1 | 117 | 129 | 9,5 |
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun | 57 | 61 | 6,5 | 342 | 356 | 4,2 |
G-47 Smásala | 82 | 84 | 2,0 | 441 | 470 | 6,6 |
H Flutningar og geymsla | 98 | 108 | 10,4 | 436 | 492 | 13,0 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 46 | 47 | 1,8 | 186 | 195 | 4,4 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 29 | 33 | 12,7 | 193 | 212 | 10,1 |
L Fasteignaviðskipti | 14 | 16 | 14,1 | 79 | 87 | 9,9 |
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum | 13 | 13 | 1,0 | 50 | 51 | 1,5 |
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur | 29 | 32 | 10,7 | 105 | 113 | 8,0 |
Aðrar atvinnugreinar | 51 | 61 | 18,0 | 324 | 357 | 10,4 |
¹Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein. | ||||||
²Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Því eru ekki komnar áreiðanlegar tölur um veltu í landbúnaði og skógrækt fyrri helming árs 2018. |
Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar í september var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 808,5 milljarðar króna í maí og júní 2018, sem var 6,7% hækkun frá sömu mánuðum árið 2017. Nú hafa nýrri tölur borist og velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, á þessu tímabili er talin vera 810,4 milljarðar, sem er 7,0% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun hagtalna í lýsigögnum og tölulegar upplýsingar um breytingar á áður útgefnum hagtölum eru í endurskoðun hagtalna.
Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar