Launavísitala í febrúar 2012 er 427,1 stig og hækkaði um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,3%.
Launavísitala 2011–2012 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2011 | |||||
Febrúar | 383,9 | 0,2 | 1,6 | 2,3 | 4,2 |
Mars | 385,2 | 0,3 | 2,2 | 2,4 | 4,4 |
Apríl | 385,6 | 0,1 | 2,5 | 2,0 | 4,4 |
Maí | 389,9 | 1,1 | 6,4 | 4,0 | 5,3 |
Júní | 405,0 | 3,9 | 22,2 | 11,8 | 7,1 |
Júlí | 409,1 | 1,0 | 26,7 | 14,0 | 7,8 |
Ágúst | 409,7 | 0,1 | 21,9 | 13,9 | 8,0 |
September | 412,8 | 0,8 | 7,9 | 14,8 | 8,4 |
Október | 415,7 | 0,7 | 6,6 | 16,2 | 8,9 |
Nóvember | 416,9 | 0,3 | 7,2 | 14,3 | 9,0 |
Desember | 418,2 | 0,3 | 5,3 | 6,6 | 9,2 |
2012 | |||||
Janúar | 418,2 | 0,0 | 2,4 | 4,5 | 9,1 |
Febrúar | 427,1 | 2,1 | 10,2 | 8,7 | 11,3 |
Kaupmáttur launa hefur aukist um 4,6% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í febrúar er 112,0 stig og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu febrúarmánaðar gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5. maí 2011. Í þeim var kveðið á um hækkun á kjarasamningsbundnum kauptöxtum um 11.000 krónur á mánuði og almenna hækkun launataxta um 3,5% hinn 1. febrúar 2012.
Í sömu samningum var kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til hækkunar á launavísitölu í maí 2011. Í launavísitölu febrúarmánaðar gætir ekki lengur áhrifa þessarar eingreiðslu. Nánar um áhrif eingreiðslna á launavísitölu vegna kjarasamninga má finna í minnisblaði sem fylgir fréttinni.
Minnisblað um áhrif eingreiðslna á launavísitölu
Talnaefni