FRÉTT LAUN OG TEKJUR 20. JÚLÍ 2012

Launavísitala í júní 2012 er 433,1 stig og hækkaði um 0,04% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,9%.

Launavísitala 2011–2012
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrri mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2011
Júní 405,0 3,9 22,2 11,8 7,1
Júlí 409,1 1,0 26,7 14,0 7,8
Ágúst 409,7 0,1 21,9 13,9 8,0
September 412,8 0,8 7,9 14,8 8,4
Október 415,7 0,7 6,6 16,2 8,9
Nóvember 416,9 0,3 7,2 14,3 9,0
Desember 418,2 0,3 5,3 6,6 9,2
2012
Janúar 418,2 0,0 2,4 4,5 9,1
Febrúar 427,1 2,1 10,2 8,7 11,3
Mars 431,7 1,1 13,6 9,4 12,1
Apríl 431,4 -0,1 13,2 7,7 11,9
Maí 432,9 0,4 5,5 7,8 11,0
Júní 433,1 0,0 1,3 7,3 6,9
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru vorið 2011, annars vegar á milli Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og hins vegar á milli fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs og stéttarfélaga opinberra starfsmanna, var kveðið á um sérstakt 10.000 króna álag á orlofsuppbót sem kom til greiðslu í júní 2011. Í launavísitölu júnímánaðar 2012 gætir ekki lengur áhrifa þessarar álagsgreiðslu. Nánar um áhrif eingreiðslna á launavísitölu má finna í minnisblaði um áhrif eingreiðslna á launavísitölu.

Kaupmáttur launa dregst saman um 0,5% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í júní er 111,0 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,4%.
 



Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.