FRÉTT LAUN OG TEKJUR 24. APRÍL 2012

Launavísitala í mars 2012 er 431,7 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 12,1%.

Launavísitala 2011–2012
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2011
Mars 385,2 0,3 2,2 2,4 4,4
Apríl 385,6 0,1 2,5 2,0 4,4
Maí 389,9 1,1 6,4 4,0 5,3
Júní 405,0 3,9 22,2 11,8 7,1
Júlí 409,1 1,0 26,7 14,0 7,8
Ágúst 409,7 0,1 21,9 13,9 8,0
September 412,8 0,8 7,9 14,8 8,4
Október 415,7 0,7 6,6 16,2 8,9
Nóvember 416,9 0,3 7,2 14,3 9,0
Desember 418,2 0,3 5,3 6,6 9,2
2012
Janúar 418,2 0,0 2,4 4,5 9,1
Febrúar 427,1 2,1 10,2 8,7 11,3
Mars 431,7 1,1 13,6 9,4 12,1
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,3% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í mars er 112,1 stig og hækkaði um 0,03% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 5,3%.
 

Kjarasamningar á tímabilinu
Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna, sem undirritaðir voru í lok maí 2011, var kveðið á um hækkun launataxta um 3,5%  í mars 2012. 

Í sömu samningum var kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til hækkunar á launavísitölu í júlí 2011. Í launavísitölu marsmánaðar gætir ekki lengur áhrifa þessarar eingreiðslu.  Nánar um áhrif eingreiðslna á launavísitölu má finna í minnisblaði sem fylgir fréttinni.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.