FRÉTT MENNTUN 02. JÚNÍ 2009


Nemendur á öllum skólastigum eru rúmlega 105 þúsund
Skólaárið 2008-2009 er heildarfjöldi nemenda á landinu öllu 105.483. Á yfirstandandi skólaári eru skráðir 18.278 nemendur á leikskólastigi, 43.511 nemendur á grunnskólastigi, 25.590 nemendur á framhaldsskólastigi og 18.104 á skólastigum ofar framhaldsskólastigi. Nemendum á Íslandi hefur fjölgað um 1.265 frá árinu áður, eða um 1,2%.

Um 7% 16 ára ungmenna sækja ekki skóla
Skólasókn 16 ára ungmenna á Íslandi haustið 2008 var 93% sé miðað við öll kennsluform (dagskóla, kvöldskóla og fjarnám). Skólasókn 16 ára ungmenna á landsvísu hefur haldist óbreytt frá haustinu 2006. Haustið 2005 voru flest 16 ára ungmenni í skóla en þá náði skólasókn 16 ára ungmenna 94%.

Nokkur munur er á skólasókn 16 ára ungmenna eftir landshlutum. Hlutfallslega flestir 16 ára unglingar sækja skóla á Austurlandi en þar er skólasókn 96%. Hins vegar sækja hlutfallslega fæstir skóla á Suðurnesjum en þar eru 88% 16 ára ungmenna skráð í skóla. Munurinn á milli þessara landshluta er því 8 prósentustig sem er umtalsverður munur.

Það er áhugavert að bera saman skólasókn 16, 17 og 18 ára ungmenna með það fyrir augum að sjá hversu hátt hlutfall nemenda heltist úr lestinni eftir fyrsta og annað ár í framhaldsskóla. Tölur Hagstofunnar sýna að haustið 2008 er hlutfall 17 ára ungmenna í skólum landsins 85% en hlutfall 18 ára er 75%. Skólasókn hefur því lækkað um 8 prósentustig á milli 16 og 17 ára aldursárganganna en um 18 prósentustig á milli 16 og 18 ára árganganna.


 

Langflestir háskólanemendur í félagsvísindum, viðskipta- og lögfræði
Heildarfjöldi nemenda á háskóla- og doktorsstigi haustið 2008 var 16.944. Þar af eru 39% (6.602) skráðir í greinar sem falla undir félagsvísindi, viðskipti og lögfræði. Næstflestir, eða 16%, eru nemendur á námssviðum sem falla undir menntunar- og kennslufræði hvers konar. Til samanburðar er hlutfall nemenda sem leggur stund á nám í verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerð 9% en í raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði nema 7% af heildarfjölda nemenda á þessum skólastigum.

Tæplega tveir af hverjum þremur háskólanemum eru konur
Konur eru 64% allra nemenda á háskóla- og doktorsstigi haustið 2008. Þær eru fjölmennari en karlar á öllum námssviðum utan verkfræði og raunvísindagreina. Í verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerð eru konur 34% nemenda en í raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði eru konur 37% nemenda. Flestar eru konur á námssviðum sem falla undir heilbrigði og velferð eða 85% allra nemenda. Á sviði menntunar og kennslufræða eru konur 84% allra nemenda.

Nemendur á doktorsstigi eru 282 og hefur fjölgað úr 20 haustið 1998. Konur hafa verið í meirihluta meðal doktorsnema frá haustinu 2001 og voru 59% doktorsnema haustið 2008. Erlendum doktorsnemum fer fjölgandi og eru erlendir ríkisborgarar 23% doktorsnema haustið 2008.

Fleiri tölur samkvæmt íslensku náms- og menntunarflokkuninni ÍSNÁM2008
Hagstofan birtir nú í annað sinn tölur um fjölda nemenda samkvæmt hinni íslensku náms- og menntunarflokkun ÍSNÁM2008 sem byggir á hinum aðþjóðlega staðli ISCED97. Nú eru aðgengilegar tölur samkvæmt ÍSNÁM2008 frá hausti 1997 og hafa því fimm ár bæst við tímaraðir samkvæmt þessari flokkun. Þá er í fyrsta sinn hægt að skoða skóla eftir rekstrarformi og sjá fjölda nemenda í opinberum skólum og einkaskólum.

Um gögnin
Upplýsingum er safnað beint frá skólunum og miðast við fjölda nemenda um miðjan október. Hver nemandi er aðeins talinn einu sinni þótt hann stundi nám í tveimur skólum. Skólasókn er reiknuð þannig að nemendur eru flokkaðir eftir aldri og lögheimili þann 1. desember ár hvert og hlutfall þeirra síðan reiknað af fjölda í hverjum flokki.

Talnaefni:
       Framhaldsskólar
       Háskólar
       Yfirlit

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.