Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, samkvæmt niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og hefur fækkað úr 34,4% árið 2003. Þegar litið er á fjöldatölur hefur íbúum með grunnmenntun fækkað um 3.800 frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012. Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, eða 58.900 manns. Álíka margir, 58.700 manns, höfðu lokið háskólanámi; 36,0% íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,5% íbúa.
Mikill munur var á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar árið 2013. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 22,7% íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 42,3% höfðu lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 37,0% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun og 24,7% lokið háskólamenntun.
Hæsta menntun 25-64 ára 2013 | |||||
Alls | Karlar | Konur | Höfuðborgar-svæði | Lands-byggð | |
Grunnmenntun | 27,8% | 26,1% | 29,6% | 22,7% | 37,0% |
Framhaldsmenntun | 36,1% | 44,2% | 27,9% | 35,0% | 38,2% |
Háskólamenntun | 36,0% | 29,6% | 42,5% | 42,3% | 24,7% |
Alls | 100,0% | 100,0% | 100,0% | 100,0% | 100,0% |
Yngra fólk hefur meiri menntun
Yngra fólk hefur almennt lokið meiri menntun en þeir sem eldri eru. Í aldurshópnum 30-49 ára höfðu 23,7% eingöngu lokið grunnmenntun og 41,4% lokið háskólamenntun árið 2013. Í aldurshópnum 65-74 ára höfðu hins vegar 45,3% eingöngu lokið grunnmenntun og 18,9% lokið háskólamenntun.
Um gögnin
Tölurnar eru byggðar á niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Vinnumarkaðsrannsóknin byggir á alþjóðlegum stöðlum og skilgreiningum. Frá árinu 2003 er heildarúrtak Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar rúmlega 3.800 einstaklingar í hverjum ársfjórðungi og svarhlutfall 80-85%. Í úrtökuramma rannsóknarinnar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eru með lögheimili á Íslandi. Heildarúrtak ársins 2013 var 15.692 manns. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 15.335 einstaklingar. Nothæf svör fengust frá 12.398 einstaklingum sem jafngildir 80,8% endanlegri svörun. Allar niðurstöður hafa verið vegnar eftir kyni og aldri.
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.