Komið hefur í ljós villa í Hagtíðindum um skuldir, eignir og eiginfjárstöðu einstaklinga sem Hagstofa Íslands gaf út 27. júní síðastliðinn. Villan var í umfjöllun um staðvirðingu skulda, eigna og eiginfjár árin 1997-2011 og hefur áhrif á framsetningu nokkurra mynda á bls 17-21 í heftinu. Þessar myndir hafa nú verið leiðréttar.
Skuldir, eignir og eiginfjárstaða einstaklinga 1997-2011 - Hagtíðindi
Talnaefni