FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 09. MARS 2017

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2016 jókst að raungildi um 11,3% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en það er mesta aukning sem mælst hefur frá því á 4. ársfjórðungi 2007. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,4%. Einkaneysla jókst um 7,2%, samneysla um 1,7% og fjárfesting um 18,6%. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði á 4. ársfjórðungi 2016 jókst óvenjulega mikið eða um 70,9% að raungildi borið saman við sama tímabil árið áður. Útflutningur jókst um 14% á sama tíma og innflutningur jókst um 8,8%. Helstu drifkraftar hagvaxtar eru fjármunamyndun og einkaneysla ásamt utanríkisviðskiptum. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 2,6% frá 3. ársfjórðungi 2016.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi


Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2016)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.