FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 05. DESEMBER 2014

Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 jókst um 0,5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2013. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 3%. Einkaneysla jókst um 2,8%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 12%. Útflutningur jókst um 5,1% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,8%.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014, án árstíðaleiðréttingar, dróst saman um 0,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,9% frá 2. ársfjórðungi 2014.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014 - Hagtíðindi


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.