FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 17. MAÍ 2017

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 1. 06. 2017 09:00 frá upprunalegri útgáfu.

Á árinu 2015 jókst vergur sparnaður innlendu geiranna um 116 milljarða kr. frá árinu 2014. Heildarfjárfesting íslensku geiranna árið 2015 var 19% af vergri landsframleiðslu samanborið við 17% árið áður. Vergur sparnaður heimilageirans af ráðstöfunartekjum jókst milli ára úr 4% árið 2014 í tæp 7% árið 2015. Verg fjármunamyndun sama geira nam 5% af ráðstöfunartekjum ársins 2015 en var tæp 6% árið áður. Verg fjármunamyndun fyrirtækja landsins nam 13% af VLF árið 2015 samanborið við 11% árið 2014. Vergur rekstrarafgangur af vinnsluvirði annarra fyrirtækja en fjármálafyrirtækja nam 41% árið 2015 sem er einu prósentustigs aukning frá fyrra ári.

 

Hagstofan birtir nú niðurstöður tekjuskiptingaruppgjörs fyrir alla fimm megingeira íslenska hagkerfisins ásamt útlöndum fyrir árið 2015. Uppgjörið felur ekki í sér nýtt mat á vergri landsframleiðslu í heild eða helstu undirliðum hennar heldur er það byggt á niðurstöðum ráðstöfunar- og framleiðsluuppgjörs þjóðhagsreikninga. Hér er aftur á móti lögð áhersla á að skrá verðmætastrauma milli megingeira hagkerfisins.  Helstu niðurstöður tekjuskiptingaruppgjörsins eru vergur og hreinn sparnaður hvers geira fyrir sig en það er sá hluti tekna af framleiðslu hagkerfisins, innanlands eða utan, sem ekki er notaður til neyslu.

Tekjuskiptingaruppgjör var leiðrétt 1. júní 2017.

Nánari lýsingu á aðferðafræði tekjuskiptingaruppgjörsins má finna í eftirfarandi hefti.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.