Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi 2026 er áætlað 207,4 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 178,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 29,3 milljarða króna en hann var jákvæður um 17,8 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2025 til mars 2026, var þjónustujöfnuður jákvæður um 284,5 milljarða króna en var jákvæður um 267,3 milljarða tólf mánuðina þar á undan.
Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 7% á fyrsta ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 14,2 milljarða króna eða um 7%, frá fyrsta ársfjórðungi 2025 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um 1,5 milljarða samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025 eða um 2%. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust einnig saman um 2% eða um tæpan milljarð frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu héldu hins vegar áfram að vaxa ört en útflutningur þeirrar þjónustu jókst um 13,5 milljarða eða 66% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025. Áfram má rekja þennan mikla vöxt að mestu leyti til aukinna umsvifa fyrirtækja tengd starfsemi gagnavera.
Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2025 til mars 2026, var 1.051,6 milljarðar króna og jókst um 6% miðað við tólf mánuðina þar á undan á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 2%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum drógust lítillega saman eða um 2%. Stærstan hluta í vexti útflutningstekna af þjónustu á umræddu tímabili má hins vegar rekja til hins mikla vaxtar af áður nefndri fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu en útflutningstekjur hennar jukust um tæpa 47 milljarða ef miðað er við tólf mánaða tímabilið þar á undan.
Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 2% á fyrsta ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fyrsta ársfjórðungi jókst um 2,8 milljarða króna eða 2%, frá fyrsta ársfjórðungi 2025 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 11% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust hins vegar töluvert saman á milli ára, eða um 21%, og útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust lítillega saman á sama tímabili eða um 1%.
Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2025 til mars 2026, var 767,1 milljarður króna og jókst um 5% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust um 11% á umræddu tímabili. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust lítillega saman, eða um 1%, og það sama má segja um útgjöld vegna samgangna og flutninga sem drógust einnig saman um 1%.
Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 5,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði er áætlaður 250,5 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 en vöruinnflutningur 273,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði er því áætlaður neikvæður um 23,4 milljarða króna.
Á fyrsta ársfjórðungi 2025 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 457,9 milljarðar króna samanborið við 447 milljarða á fyrsta ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 452 milljarðar króna samanborið við 513,5 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 5,9 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 en var neikvæður um 66,5 milljarða á sama tíma 2025.
Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2025 til mars 2026, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 39,6 milljarða króna en hann var neikvæður um 82,5 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.
Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2026. Í mars 2026 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 170,2 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 185,3 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í mars 2026 hafi verið neikvæður um 15,1 milljarð króna.
Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti