FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 23. ÁGÚST 2024

Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi 2024 er áætlað 238,8 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 171,6 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 67,2 milljarða króna en hann var jákvæður um 88,9 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2023 til júní 2024, var þjónustujöfnuður jákvæður um 277,3 milljarða króna en var jákvæður um 262,6 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi dróst saman um 12,4 milljarða króna, eða um 5%, frá öðrum ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um 3,7 milljarða samanborið við annan ársfjórðung 2023 eða um 3%. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust saman um 3,9 milljarða eða um 5% frá öðrum ársfjórðungi 2023. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 4%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2023 til júní 2024, var 934,9 milljarðar króna og jókst um 7% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 10%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 9%, en útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust saman um 2%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 9,3 milljarða króna, eða um 6%, frá öðrum ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 1% samanborið við annan ársfjórðung 2023. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 2%, og sömu sögur er að segja um útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 1% á milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2023 til júní 2024, var 657,6 milljarðar króna og jókst um 7% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 11% og útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 4%. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig eða um 2%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 22,3 milljarða á öðrum ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 241,4 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2024 en vöruinnflutningur 330,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 89,5 milljarða króna.

Á öðrum ársfjórðungi 2024 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 480,3 milljarðar króna samanborið við 482,9 milljarða á öðrum ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 502,5 milljarðar króna samanborið við 476,5 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 22,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2024 en hann var jákvæður um 6,4 milljarða á sama tíma 2023.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2023 til júní 2024, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður neikvæður um 28,8 milljarða króna en hann var neikvæður um 9,2 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2024. Í júní 2024 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 171,6 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 175,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í júní 2024 hafi verið neikvæður um 3,5 milljarða króna.

Endurskoðun á áður birtum tölum
Velta greiðslukorta er ein af þeim heimildum sem liggja til grundvallar útreikningum á ferðalagalið þjónustuviðskipta. Nú liggja fyrir endurskoðaðar tölur um greiðslukortaveltu aftur til janúar 2023 og hafa þau gögn áhrif til hækkunar á bæði innflutning og útflutning á þjónustu. Þjónustujöfnuður ferðalaga á fyrsta ársfjórðungi var þannig jákvæður um 25 milljarða króna í stað 22,4 milljarða í áður birtum tölum. Á 12 mánaða tímabili frá öðrum ársfjórðungi 2023 til fyrsta ársfjórðungs 2024 var þjónustujöfnuður ferðalaga jákvæður um 205,3 milljarða króna í stað 201,4 milljarða.

Þar að auki eru nú teknar inn upplýsingar úr árlegri gagnasöfnun frá fyrirtækjum í úrtaki þjónustuviðskiptakönnunar við útlönd. Þær upplýsingar hafa áhrif á áður útgefnar tölur um inn- og útflutning á þjónustu fyrir árið 2023 og fyrsta ársfjórðung 2024.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.