FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. ÁGÚST 2026

Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi 2026 er áætlað 262,7 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 196 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 66,6 milljarða króna en hann var jákvæður um 61,9 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2025 til júní 2026, var þjónustujöfnuður jákvæður um 301,9 milljarða króna en var jákvæður um 265,7 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 2% á öðrum ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 4,7 milljarða króna eða um 2%, frá öðrum ársfjórðungi 2025 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um tæpan milljarð samanborið við annan ársfjórðung 2025 eða um 1%. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust einnig saman, um 7% eða um 5,2 milljarða frá öðrum ársfjórðungi 2025. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu héldu hins vegar áfram að vaxa ört en útflutningur þeirrar þjónustu jókst um 14,1 milljarða eða 70% samanborið við annan ársfjórðung 2025. Áfram má rekja þennan mikla vöxt að stærstum hluta til aukinna umsvifa fyrirtækja tengd starfsemi gagnavera.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2025 til júní 2026, var 1.064,4 milljarðar króna og jókst um 5% miðað við tólf mánuðina þar á undan á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 2%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum drógust hins vegar saman um 5%. Stærstan hluta í vexti útflutningstekna af þjónustu á umræddu tímabili má hins vegar rekja til hins mikla vaxtar af áður nefndri fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu en útflutningstekjur hennar jukust um 51,4 milljarða ef miðað er við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Verðmæti þjónustuinnflutnings stóð í stað á öðrum ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi stóð nánast í stað ef miðað er við annan ársfjórðung 2025 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 4% samanborið við annan ársfjórðung 2025. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust hins vegar töluvert saman á milli ára, eða um 29%, en útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust hins vegar á sama tímabili um 9%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2025 til júní 2026, var 762,5 milljarðar króna og jókst um 2% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust um 6% á umræddu tímabili. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust nokkuð saman, eða um 16%, en útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust hins vegar um 2%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 87,8 milljarða á öðrum ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði er áætlaður 247,3 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2026 en vöruinnflutningur 401,8 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði er því áætlaður neikvæður um 154,4 milljarða króna.

Á öðrum ársfjórðungi 2026 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 510 milljarðar króna samanborið við 499,8 milljarða á öðrum ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 597,8 milljarðar króna samanborið við 566 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 87,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2026 en var neikvæður um 66,2 milljarða á sama tíma 2025.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2025 til júní 2026, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 50,7 milljarða króna en hann var neikvæður um 119,7 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2026. Í júní 2026 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 202,4 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 217,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í júní 2026 hafi verið neikvæður um 14,8 milljarð króna.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.