FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. FEBRÚAR 2025

Verðmæti þjónustuútflutnings á fjórða ársfjórðungi 2024 er áætlað 212,9 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 178,4 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 34,5 milljarða króna en hann var jákvæður um 34,1 milljarð á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2024 til desember 2024, var þjónustujöfnuður jákvæður um 261,7 milljarða króna en var jákvæður um 295 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 6% á fjórða ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á fjórða ársfjórðungi jókst um 11,8 milljarða króna, eða um 6%, frá fjórða ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 7 milljarða samanborið við fjórða ársfjórðung 2023 eða um 9%. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 2,9 milljarða eða 5% frá fjórða ársfjórðungi 2023. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu jukust um 3% á meðan útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust lítillega saman eða um 2%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2024 til desember 2024, var 951,8 milljarðar króna og jókst um 1% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 4%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum drógust hins vegar saman um 1%, á meðan útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu stóðu nánast í stað.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 7% á fjórða ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fjórða ársfjórðungi jókst um 11,4 milljarða króna, eða 7%, frá fjórða ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 8% samanborið við fjórða ársfjórðung 2023. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust einnig á milli ára, um 9%, og sama er að segja um útgjöld vegna samgangna og flutninga sem jukust um 6%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2024 til desember 2024, var 690,1 milljarður króna og jókst um 7% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 7% og útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu, sem jukust um 6%. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust um 4%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 69,6 milljarða á fjórða ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 260,1 milljarður króna á fjórða ársfjórðungi 2024 en vöruinnflutningur 364,2 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 104,1 milljarð króna.

Á fjórða ársfjórðungi 2024 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 473 milljarðar króna samanborið við 441,6 milljarða á fjórða ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 542,6 milljarður króna samanborið við 485,2 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 69,6 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2024 en hann var neikvæður um 43,6 milljarða á sama tíma 2023.

Á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2024 til desember 2024, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 52,8 milljarða króna en hann var jákvæður um 6,7 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á fjórða ársfjórðungi 2024. Í desember 2024 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 151,9 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 183,5 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í desember 2024 hafi verið neikvæður um 31,6 milljarða króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.