FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. FEBRÚAR 2026

Verðmæti þjónustuútflutnings á fjórða ársfjórðungi 2025 er áætlað 248,7 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 199,3 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 49,4 milljarða króna en hann var jákvæður um 53,1 milljarð á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2025 til desember 2025, var þjónustujöfnuður jákvæður um 273,1 milljarð króna en var jákvæður um 264,8 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 4% á fjórða ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuútflutnings á fjórða ársfjórðungi jókst um 10,2 milljarða króna eða um 4%, frá fjórða ársfjórðungi 2024 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um 6,3 milljarða samanborið við fjórða ársfjórðung 2024 eða um 7%. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust saman um 2,6 milljarða eða 4% frá fjórða ársfjórðungi 2024. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu nánast tvöfölduðust samanborið við fjórða ársfjórðung 2024. Þennan mikla vöxt má að mestu rekja til aukinna umsvifa fyrirtækja tengd starfsemi gagnavera, þar sem bæði eftirspurn og afkastageta í gagnavinnslu- og hýsingarþjónustu hefur aukist verulega.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2025 til desember 2025, var 1.037,4 milljarðar króna og jókst um 6% miðað við tólf mánuðina þar á undan á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 3%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum dróst lítillega saman, eða um 1%. Á sama tíma jukust útflutningstekjur af áður nefndri fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu um 50%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 8% á fjórða ársfjórðungi
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fjórða ársfjórðungi jókst um 13,9 milljarða króna eða 8%, frá fjórða ársfjórðungi 2024 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 13% samanborið við fjórða ársfjórðung 2024. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu drógust hins vegar lítillega saman á milli ára, um 1%, og útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust saman um 4%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2025 til desember 2025, var 764,3 milljarðar króna og jókst um 6% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis jukust um 11% á umræddu tímabili. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu jukust um 4% og útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust lítillega saman, eða um 1%.

Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 24 milljarða á fjórða ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði er áætlaður 235,5 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi 2025 en vöruinnflutningur 308,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 73,4 milljarða króna.

Á fjórða ársfjórðungi 2025 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 484,2 milljarðar króna samanborið við 505,3 milljarð á fjórða ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 508,2 milljarðar króna samanborið við 549,5 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 24 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2025 en var jákvæður um 44,2 milljarða á sama tíma 2024.

Á tólf mánaða tímabili, frá janúar 2025 til desember 2025, var vöru- og þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 112 milljarða króna en hann var neikvæður um 58 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð á fjórða ársfjórðungi 2025. Í desember 2025 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 159,7 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 174,9 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í desember 2025 hafi verið neikvæður um 15,2 milljarða króna.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.