Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu hefur verið breytt frá upprunalegri útgáfu. Ný fréttatilkynning var gefin út í staðinn.
Fluttar voru út vörur fyrir 60,9 milljarða króna í mars 2020 og inn fyrir 68,9 milljarða króna fob (73,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,8 milljarða króna í mars 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.1
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í mars 2020 var því 0,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður án skipa og flugvéla í mars 2020 var óhagstæður um 3,1 milljarð króna fob en var óhagstæður um 11,9 milljarða króna fob 2019. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 8,8 milljörðum króna hagstæðari án skipa og flugvéla í mars 2020 en í mars 2019.
Aukið verðmæti útfluttra sjávarafurða
Verðmæti vöruútflutnings var 13,3 milljörðum króna lægra á fyrstu þremur mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári síðan eða 7,6% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Munar þar mest um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019. Sjávarafurðir voru tæpur helmingur alls útflutnings, eða 46,7%, og var verðmæti þeirra 19,2% hærra en á sama tíma árið áður. Mest var aukning á frystum heilum fiski og frystum flökum. Iðnaðarvörur voru 44,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 6,5% lægra en á sama tíma árið áður.
Vöruinnflutningur 5,2 milljörðum minni
Verðmæti vöruinnflutnings var 5,2 milljörðum króna lægra á fyrstu þremur mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári eða 3% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Innflutningur dróst saman í öllum flokkum nema í innflutningi á flutningstækjum og neysluvörum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-mars 2019 og 2020 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % janúar-mars | ||||
Mars | Janúar-mars | ||||
2019 | 2020 | 2019 | 2020 | ||
Útflutningur alls fob | 52.691,3 | 60.920,1 | 173.954,7 | 160.663,6 | -7,6 |
Sjávarafurðir | 21.706,2 | 30.503,6 | 63.008,9 | 75.076,9 | 19,2 |
Landbúnaðarvörur | 2.469,2 | 3.249,7 | 7.809,3 | 9.565,6 | 22,5 |
Iðnaðarvörur | 24.478,2 | 26.147,2 | 77.219,7 | 72.190,2 | -6,5 |
Aðrar vörur | 4.037,7 | 1.019,7 | 25.916,8 | 3.830,9 | -85,2 |
Innflutningur alls fob | 61.505,0 | 68.900,9 | 174.209,7 | 169.053,8 | -3,0 |
Matvörur og drykkjarvörur | 5.089,3 | 6.133,3 | 15.847,1 | 15.795,3 | -0,3 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 17.361,8 | 20.377,9 | 51.760,9 | 44.955,9 | -13,1 |
Eldsneyti og smurolíur | 7.930,4 | 6.644,1 | 18.641,7 | 17.584,6 | -5,7 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 15.198,8 | 13.611,0 | 45.297,8 | 35.966,5 | -20,6 |
Flutningatæki | 6.922,9 | 12.626,4 | 17.789,9 | 28.491,2 | 60,2 |
Neysluvörur ót.a. | 8.975,1 | 9.492,0 | 24.776,9 | 26.209,8 | 5,8 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 26,7 | 16,2 | 95,4 | 50,4 | -47,1 |
Vöruviðskiptajöfnuður | -8.813,65 | -7.980,75 | -255,01 | -8.390,14 |
1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.