Vísitala framleiðsluverðs var 3,1% lægri í janúar 2008 en í janúar 2007. Verðvísitala afurða stóriðju lækkaði á sama tíma um 16,8% en verðvísitala sjávarafurða hækkaði um 3,4%. Verðvísitala matvælaframleiðslu hækkaði um 4,3%.
Í nýju hefti Hagtíðinda er rakin þróun vísitölunnar árið 2007 og vogum hennar eru gerð sérstök skil.
Vísitala framleiðsluverðs 2007 - Hagtíðindi