FRÉTT VERÐLAG 13. ÁGÚST 2004

Vísitala framleiðsluverðs fyrir 2. ársfjórðung 2004 er 100,0 stig, 1,9% hærri en á 1. ársfjórðungi 2004.  Verðvísitala sjávarafurða er 97,2 stig og hækkar um 1,1% (vísitöluáhrif 0,50%).  Verðvísitala annarrar iðnaðarframleiðslu er 102,3 stig og hækkar um 2,5% (vísitöluáhrif 1,40%). Hækkun vísitölunnar að þessu sinni er að langmestu leyti tilkomin vegna hækkunar á verði framleiðslu til útflutnings.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.