Vísitala framleiðsluverðs fyrir 4. ársfjórðung 2004 er 100,3 stig, 0,3% lægri en á 3. ársfjórðungi 2004. Verðvísitala sjávarafurða er 98,9 stig og hækkar um 0,8% (vísitöluáhrif hennar eru 0,34%). Verðvísitala annarrar iðnaðarframleiðslu er 101,5 stig og lækkar um 1,2% (vísitöluáhrif -0,66%)¹.
¹Allir útreikningar eru miðaðir við tölur með fullum aukastöfum. Vegna styttingar aukastafa kann að skapast ósamræmi milli birtra talna.
Talnaefni