FRÉTT VERÐLAG 27. SEPTEMBER 2007

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2007 var 121,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 4,8% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 126,6 stig, sem er hækkun um 5,7% (vísitöluáhrif 2,1%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 146,3 stig, hækkaði um 9,1% (1,8%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,1% milli mánaða (0,0%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 3,5% frá júlí (0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,7% (0,2%)  milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 7,3% (4,6%).

Frá ágúst 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 0,2%, sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 1,0%, afurðir stóriðju um 2,1% og matvælaverð hefur hækkað um 2,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.