FRÉTT VERÐLAG 29. SEPTEMBER 2008

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2008 var 159,6 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,9% frá júlí. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 173,0 stig, sem er hækkun um 0,2% (vísitöluáhrif 0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 214,2 stig, hækkaði um 7,8% (2,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,6% frá júlí (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,4% (-0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,3% (0,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 2,8% (1,8%).

Frá ágúst 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 31,9% og verðvísitala sjávarafurða um 36,7%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 46,4% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 15,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í ágúst 2008 var 0,5% lægra en í júlí og 33,2% hærra en í ágúst 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.