FRÉTT VERÐLAG 29. SEPTEMBER 2011

Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2011 var 216,7 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 0,8% frá júlí 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 255,4 stig, sem er hækkun um 0,5% (vísitöluáhrif 0,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 257,5 stig, lækkaði um 2,9% (-1,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,5% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,1%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,3% (-1,0%).

Miðað við ágúst 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 17,2% en verðvísitala sjávarafurða um 19,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 20,7% en matvælaverð hefur hækkað um 8,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í ágúst 2011 var 0,7% lægra en í júlí 2011 og 4,8% hærra en í ágúst 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.