FRÉTT VERÐLAG 28. MAÍ 2009

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2009 var 164,1 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 7,2% frá mars 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 208,4 stig, sem er hækkun um 11,4% (vísitöluáhrif 3,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 156,9 stig, hækkaði um 10,2% (3,1%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,3% frá mars og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,8% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,2% (-0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 10,7% (7,3%).

Frá apríl 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% og verðvísitala sjávarafurða um 28,6%. Á sama hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 16,5% en matvælaverð hefur hækkað um 14,8%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3
Mars -1,6 -1,0 -5,2 -0,2 0,2 -2,4
Apríl 7,2 11,4 10,2 0,3 -0,2 10,7

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6
Mars 11,6 19,2 -15,3 21,7 27,3 3,9
Apríl 12,5 28,6 -16,5 14,8 19,1 8,4

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í apríl 2009 var 11,9% hærra en í mars 2009 en 44% hærra en í apríl 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.