FRÉTT VERÐLAG 29. JANÚAR 2009

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2008 var 183,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 7,1% frá nóvember. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 232,5 stig, sem er lækkun um 6,4% (vísitöluáhrif -2,0%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 207,5 stig, lækkaði um 18,5% (-5,4%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 2,8% frá nóvember (0,4%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,6% (-0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,1% (0,7%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 11,7% (-7,8%).

Frá desember 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 53,2% og verðvísitala sjávarafurða um 77,3%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 56,8% en matvælaverð um 25,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8

Meðalvísitala framleiðsluverðs árið 2008 var 156,7 stig, 31,0% hærri en meðalvísitalan 2007. Til samanburðar hækkaði meðalvísitalan um 1,8% frá 2006 til 2007.

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í desember 2008 var 5,9% lægra en í nóvember en 79,5% hærra en í desember 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.