FRÉTT VERÐLAG 28. JANÚAR 2011

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2010 var 198,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,7% frá nóvember 2010. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var nær óbreytt, 225,2 stig, og vísitala fyrir stóriðju var 241,9 stig, hækkaði um 2,5% (vísitöluáhrif 0,9%). Vísitalan fyrir matvæli stóð í stað og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 5,6% (0,8%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,3% (0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,8% (1,4%).

Miðað við desember 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 2,6% en verðvísitala sjávarafurða lækkað um 3,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 11,0% en matvælaverð hefur hækkað um 3,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2009
Desember 1,9 1,1 4,2 0,0 -0,2 2,6
2010
Janúar 3,9 -1,6 11,3 0,5 1,1 4,8
Febrúar 0,8 -1,0 3,9 0,4 -0,3 1,2
Mars -2,7 0,7 -8,0 -0,5 0,5 -3,7
Apríl 2,5 -0,5 7,0 0,5 0,4 3,2
Maí 1,2 -1,9 6,4 0,1 -0,6 1,8
Júní -5,4 -1,1 -11,5 0,3 -0,5 -7,0
Júlí -3,3 -0,2 -8,2 0,4 -0,2 -4,2
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2009
Desember 5,4 0,5 5,1 2,2 5,6 3,3
2010
Janúar 18,1 4,5 40,9 2,5 6,6 21,7
Febrúar 29,8 20,5 67,8 3,2 3,9 41,9
Mars 28,4 22,6 62,8 2,9 4,3 40,0
Apríl 22,8 9,5 58,1 3,2 4,8 30,6
Maí 21,4 3,6 60,3 3,2 4,8 28,2
Júní 13,5 1,7 38,1 2,6 3,8 17,5
Júlí 6,1 0,1 17,8 2,5 2,3 7,8
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
Desember 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í desember 2010 hækkaði um 0,7% frá nóvember 2010 en var 12,7% lægra en í desember 2009. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.