FRÉTT VERÐLAG 27. MARS 2009

Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2009 var 155,5 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 8,3% frá janúar 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 188,9 stig, sem er lækkun um 14,1% (vísitöluáhrif -4,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 150,3 stig, lækkaði um 12,7% (-3,8%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,3% frá janúar og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,7% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,3% (0,5%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 13,3% (-8,8%).

Frá febrúar 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 23,8% og verðvísitala sjávarafurða um 35,5%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 8,0% en matvælaverð um 23,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6


Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í febrúar 2009 var 12,0% lægra en í janúar 2009 en 45,2% hærra en í febrúar 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.