FRÉTT VERÐLAG 28. FEBRÚAR 2008

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2008 var 121,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 2,0% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 135,2 stig, sem er hækkun um 3,1% (vísitöluáhrif 1,1%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 131,3 stig, lækkaði um 0,8%    (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,4% frá desember (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað um 3,3% (0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,9% (1,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 1,5% (0,9%).

Frá janúar 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 3,1%, verðvísitala sjávarafurða hefur hækkað um 3,4% og afurðir stóriðju lækkað um 16,8%. Matvælaverð hefur hækkað um 4,3%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007 . . . . . .
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008 . . . . . .
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007 . . . . . .
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008 . . . . . .
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í janúar 2008 var 3,9% hærra en í desember 2007 og 0,9% hærra en í janúar 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.