FRÉTT VERÐLAG 28. ÁGÚST 2008

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2008 var 156,7 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 2,4% frá júní. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 172,7 stig, sem er lækkun um 0,3% (vísitöluáhrif -0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 198,8 stig, hækkaði um 1,9% (0,5%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,4% frá júní (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 8,1% (2,0%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 3,1% (1,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 2,0% (1,3%).

Frá júlí 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 35,7% og verðvísitala sjávarafurða um 44,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 48,3% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 14,4%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júlí 2008 var 0,2% hærra en í júní og 42,9% hærra en í júlí 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.