FRÉTT VERÐLAG 30. JÚLÍ 2008

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2008 var 153,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 3,7% frá maí 2008. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 173,3 stig, sem er hækkun um 7,4% (vísitöluáhrif 2,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 195,1 stig, hækkaði um 3,4% (0,8%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% frá maí (0,0%). Vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,4% (0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,4% (0,1%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 5,6% (3,6%).

Frá júní 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 29,5% og verðvísitala sjávarafurða um 44,7%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 36,1% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 14,1%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2008 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2006 og 2007.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0
Ágúst 4,8 5,7 9,1 -0,1 0,7 7,3
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7
Ágúst 0,2 1,0 2,1 2,2 1,7 -0,9
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júní 2008 var 5,0% hærra en í maí og 40,5% hærra en í júní 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.