FRÉTT VERÐLAG 28. JÚNÍ 2007

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2007 er 118,3 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 2,4% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 121,0 stig og lækkaði um 4,2% (vísitöluáhrif -1,6%) og vísitala fyrir stóriðju er 145,2 stig, lækkaði um 1,2% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli var óbreytt milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,4% frá apríl (-0,6%). Á sama tíma lækkaði verð á erlendum gjaldmiðlum um 3,4%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,2%)  milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 3,5% (-2,2%).

Frá maí 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,0%; sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 2,0% og matvæli um 2,4% en afurðir stóriðju hafa lækkað um 3,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí -2,1 -5,2 3,7 2,4 1,6 -4,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.