Vísitala framleiðsluverðs í mars 2007 er 121,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og er óbreytt frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 125,8 stig og lækkar um 0,3% (vísitöluáhrif -0,1%) og vísitala fyrir stóriðju er 152,4 stig, hækkar um 0,4% (0,1%). Vísitalan fyrir matvæli lækkar um 0,4% (-0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkar um 0,5% (0,1%). Athygli er vakin á því að verð sem notuð eru við útreikning vísitölunnar eru án virðisaukaskatts og vörugjalda.
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkar um 0,6% (0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkar hún um 0,3% (-0,2%).
Frá mars 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 9,5%, sjávarafurðir hafa hækkað um 14,4%, afurðir stóriðju um 12,2% og matvæli um 5,8%.
Breyting frá fyrri mánuði (%) | ||||||
2007 | Vísitala | Sjávarafurðir | Afurðir | Matvæli | Innlend | Útfluttar |
framleiðsluverðs | stóriðju | sala | afurðir | |||
Janúar | 0,9 | 0,4 | 4,1 | 0,7 | 0,2 | 1,3 |
Febrúar | -3,1 | -3,5 | -3,7 | 0,7 | -0,2 | -4,8 |
Mars | 0,0 | -0,3 | 0,4 | -0,4 | 0,6 | -0,3 |
Breyting frá fyrra ári (%) | ||||||
2007 | Vísitala | Sjávarafurðir | Afurðir | Matvæli | Innlend | Útfluttar |
framleiðsluverðs | stóriðju | sala | afurðir | |||
Janúar | 22,4 | 28,6 | 42,0 | 7,1 | 8,0 | 30,9 |
Febrúar | 15,6 | 23,1 | 24,9 | 6,8 | 7,1 | 20,2 |
Mars | 9,5 | 14,4 | 12,2 | 5,8 | 7,3 | 10,4 |
Talnaefni