FRÉTT VERÐLAG 27. APRÍL 2007

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2007 er 121,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og er óbreytt frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 125,8 stig og lækkar um 0,3% (vísitöluáhrif -0,1%) og vísitala fyrir stóriðju er 152,4 stig, hækkar um 0,4% (0,1%). Vísitalan fyrir matvæli lækkar um 0,4% (-0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkar um 0,5% (0,1%). Athygli er vakin á því að verð sem notuð eru við útreikning vísitölunnar eru án virðisaukaskatts og vörugjalda.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkar um 0,6% (0,2%)  milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkar hún um 0,3% (-0,2%).

Frá mars 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 9,5%, sjávarafurðir hafa hækkað um 14,4%, afurðir stóriðju um 12,2% og matvæli um 5,8%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Sjávarafurðir Afurðir  Matvæli Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs   stóriðju   sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Sjávarafurðir Afurðir  Matvæli Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs   stóriðju   sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.