FRÉTT VERÐLAG 29. APRÍL 2011

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2011 var 210,2 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,3% frá febrúar 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 243,3 stig, sem er hækkun um 2,0% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 260,0 stig, hækkaði um 1,6% (0,6%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,1% (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,2% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% (0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,4% (1,1%).

Miðað við mars 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,9% en verðvísitala sjávarafurða um 6,1%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 12,1% en matvælaverð hefur hækkað um 5,0%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Mars -2,7 0,7 -8,0 -0,5 0,5 -3,7
Apríl 2,5 -0,5 7,0 0,5 0,4 3,2
Maí 1,2 -1,9 6,4 0,1 -0,6 1,8
Júní -5,4 -1,1 -11,5 0,3 -0,5 -7,0
Júlí -3,3 -0,2 -8,2 0,4 -0,2 -4,2
Ágúst -0,9 -3,1 -0,5 -0,2 1,3 -1,5
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Mars 28,4 22,6 62,8 2,9 4,3 40,0
Apríl 22,8 9,5 58,1 3,2 4,8 30,6
Maí 21,4 3,6 60,3 3,2 4,8 28,2
Júní 13,5 1,7 38,1 2,6 3,8 17,5
Júlí 6,1 0,1 17,8 2,5 2,3 7,8
Ágúst 1,8 -4,8 11,5 1,1 1,7 2,2
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
Desember 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í mars 2011 hækkaði um 0,7% frá febrúar 2011 en var 5,8% lægra en í mars 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.