FRÉTT VERÐLAG 04. JANÚAR 2012


Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2011 var 211,1 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 0,9% frá október 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 261,8 stig, sem er hækkun um 0,5% (vísitöluáhrif 0,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 230,1 stig, lækkaði um 4,0% (-1,5%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,6% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,9% (0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5% (-1,1%).

Miðað við nóvember 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 8,4% en verðvísitala sjávarafurða um 16,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 2,5% en matvælaverð hefur hækkað um 7,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2
Október -1,1 1,8 -4,5 -0,7 0,0 -1,3
Nóvember -0,9 0,5 -4,0 0,2 0,9 -1,5

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1
Október 12,8 16,3 10,4 8,0 7,8 14,1
Nóvember 8,4 16,2 -2,5 7,7 9,6 8,0

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í nóvember 2011 var 0,3% hærra en í október 2011 og 4,3% hærra en í nóvember 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.