FRÉTT VERÐLAG 29. NÓVEMBER 2011

Vísitala framleiðsluverðs í október 2011 var 213,1 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,1% frá september 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 260,5 stig, sem er hækkun um 1,8% (vísitöluáhrif 0,6%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 239,6 stig, lækkaði um 4,5% (-1,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,7% (-0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,9% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands var nánast óbreytt milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,3% (-1,1%).

Miðað við október 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,8% en verðvísitala sjávarafurða um 16,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 10,4% en matvælaverð hefur hækkað um 8,0%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2
Október -1,1 1,8 -4,5 -0,7 0,0 -1,3

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1
Október 12,8 16,3 10,4 8,0 7,8 14,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í október 2011 var 1,1% lægra en í september 2011 og 3,6% hærra en í október 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.