FRÉTT VERÐLAG 30. OKTÓBER 2008

Vísitala framleiðsluverðs í september 2008 var 165,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 3,9% frá ágúst. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 187,9 stig, sem er hækkun um 8,6% (vísitöluáhrif 2,8%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 217,3 stig, hækkaði um 1,4% (0,4%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,5% frá ágúst (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,5%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,4%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 5,4% (3,5%).

Frá september 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 39,6% og verðvísitala sjávarafurða um 47,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 62,0% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 15,9%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
September -1,8 0,8 -8,3 0,9 0,0 -2,8
Október -2,5 -1,9 -7,8 0,6 -0,1 -4,0
Nóvember 1,0 2,7 2,3 1,0 -1,1 2,3
Desember 2,2 2,0 4,6 0,1 0,5 3,2
2008
Janúar 2,0 3,1 -0,8 1,4 2,9 1,5
Febrúar 3,1 3,1 6,0 0,6 1,4 4,1
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2007
September -1,6 0,0 -4,2 3,3 2,0 -4,0
Október -3,0 -0,3 -10,0 4,0 1,7 -6,0
Nóvember -4,6 -0,8 -14,3 5,2 0,7 -7,8
Desember -4,2 0,7 -12,6 3,6 -0,2 -6,6
2008
Janúar -3,1 3,4 -16,8 4,3 2,5 -6,4
Febrúar 3,1 10,5 -8,4 4,1 4,2 2,4
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í september 2008 var 8,0% hærra en í ágúst og 44,4% hærra en í september 2007. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.