FRÉTT VERÐLAG 28. OKTÓBER 2011

Vísitala framleiðsluverðs í september 2011 var 215,3 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 0,6% frá ágúst 2011. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 255,8 stig, sem er hækkun um 0,2% (vísitöluáhrif 0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 250,8 stig, lækkaði um 2,6% (-1,0%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,2% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,1% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,2% (-0,9%).

Miðað við september 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 13,9% en verðvísitala sjávarafurða um 15,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 13,2% en matvælaverð hefur hækkað um 10,1%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
September 2,3 3,7 3,8 -0,1 -0,5 3,1
Október -0,1 1,0 -2,0 1,2 1,4 -0,5
Nóvember 3,1 0,6 8,8 0,5 -0,7 4,1
Desember 1,7 0,0 2,5 0,0 1,3 1,8
2011
Janúar 2,1 3,5 2,2 0,0 -0,3 2,7
Febrúar 2,7 2,4 3,4 1,0 1,2 3,1
Mars 1,3 2,0 1,6 1,1 0,8 1,4
Apríl 1,6 1,7 -0,5 0,2 0,9 1,8
Maí 1,6 0,8 4,6 0,3 0,5 1,9
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2010
September 1,4 0,8 3,2 0,8 2,0 1,3
Október 1,0 -2,2 5,8 3,0 3,0 0,5
Nóvember 2,9 -2,6 12,8 3,3 1,6 3,3
December 2,6 -3,6 11,0 3,2 3,1 2,4
2011
Janúar 0,9 1,3 1,9 2,7 1,7 0,3
Febrúar 2,7 4,7 1,5 3,3 3,2 2,2
Mars 6,9 6,1 12,1 5,0 3,5 7,7
Apríl 6,0 8,4 4,3 4,7 4,1 6,2
Maí 6,3 11,4 2,5 4,9 5,2 6,3
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í september 2011 var 1,3% lægra en í ágúst 2011 og 4,7% hærra en í september 2010. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.